það sem er á döfinni þessa dagana.......
Sælt verið fólkið, fyrir tveimur helgum skelltum við Maggi okkur til Norður Michigan til Boyne á snjóbretti með tveimur íslenskum félögum okkar, Orra og frænda hans Gylfa. Við fengum alveg frábært veður og gott færi :D Við skemmtum okkur rosalega vel og gátum heldur betur notað brettin okkar og erum orðin algjörir snjóbrettasnillingar ...hahahhahhahhah segi svona....ég setti nokkrar myndir af okkur frá Boyne hérna fyrir neðan :)
Annars er allt ágætt að frétta héðan frá Ann Arbor, það hefur reyndar kólnað síðustu daga og snjóað svolitið......sem er svo sem allt í lagi, þá getum við skellt okkur á snjóbretti !!
Nóg að gera í skólanum/vinnunni, erum bæði að vinna í að skrifa greinar og vinna í rannsóknunum okkar núna þessa dagana. Núna í vikunni fékk ég æðislega sendingu að heiman frá henni múttu minni, 4 nóa-kropps pokar, flíspeysan mín sem ég gleymdi á klakanum um jólin, hollustu matreiðslubók og æðislega flotta skyrtu ...takk mútta kiss kiss :)

2 Comments:
At 8:00 AM,
AMJ said…
Lítur að hafa verið gríðarlega skemmtilegt :) Mín er að fara að skella sér í frönsku alpana 4. mars :D farin að hlakka rosalega til. Ætla þó líklegast ekki á bretti nema kannski einn dag.
Bestu kveðjur frá fransinu,
Ásthildur
At 3:00 AM,
jenny said…
in the first pic, you and magnus have matching winks. hehe. ;o)
Post a Comment
<< Home