Hvað er málið með varnarliðið og ríkisstjórnina, ég hef nú ekki sterkar skoðanir á pólitík almennt, þar sem að maður er nú verkfræðingur ;0) , en eitt vil ég segja, ríkistjórnin var greinilega og er enn held ég bara í algjörri afneitun, er ekki komin tími til að ísland taki sjálfstæðar ákvarðanir og móti stefnu um öryggismál íslendinga, við erum búin að vera eins og ósjálfstæðir hvolpar í þessum viðræðum við bandaríkjamenn, og þó að það sé auðvitað slæmt að það sé fólk sem á eftir að missa vinnuna, þá er í rauninni enginn undirstaða lengur fyrir varnarliðið að vera með herstöð á íslandi!
Smá tjáningur í gangi, þessi umfjöllun hefur farið svolítið í taugarnar á mér, íslendingar með skottið á milli lappanna, hræddir við að taka málin í sínar eigin hendur.....hvað er í gangi, erum við ekki fallegust, sterkust og klárust ;) ættum við ekki að geta séð um varnamálin og stefnu okkar á því sviði sjálf...
....fleira var það ekki í dag ;)....

0 Comments:
Post a Comment
<< Home