Sumarfríííííííi
Núna eru bara nokkrir dagar þangað til að við höldum heim til íslands í frí, stoppum reyndar bara í tvo daga og höldum síðan til Florence, ítalíu. Minn er alveg gegg spenntur...þarf samt ad klára nokkra hluti áður en við förum..ohhh híhíhíhíh er alveg rosalega spennt að komast í frí, get ekki hamið mig...brosi alveg allan hringinn þegar ég hugsa um það :)
Fengum heimsókn frá mömmu og pabba hans Magga þar síðustu helgi...skruppum til Chicago okkar uppáhaldsborg yfir dag, fórum í hina frægu arkitektúr bátsferð í gegnum borgina og fengum æðislegt veður í siglingunni :D Klikkuðum reyndar á því að taka með myndavél þannig að það voru engar myndir teknar :S
Eftir ferðina gróf upp myndavélina okkar...algjör snillingur að gera það ekki fyrir ferðina ;) og fann myndir frá 4. júlí síðasta sumar, þegar við fórum með vinum okkar Jenny og Kahn í akkurat sömu bátsferðina og þá tókum við myndir...þannig að ég setti þær myndir í albúmið og svo hérna fyrir neðan.... ekki meira í bili...vi ses





0 Comments:
Post a Comment
<< Home