Sumarfríið búið :S
Nú erum við komin tilbaka til Ann Arbor eftir sumarfríið, sem samanstóð af 4 dögum á íslandi og 2 vikum á ítalíu, fyrstu vikuna í Florence og hina í Monte San Savino í Toscana héraði. Ég náði að hitta skvísurnar vinkonur mínar og við skelltum okkur á smá tjútt, takk fyrir það skvísur, rosa gaman, söknuðum reyndar Gíselu sem er í Hollandi :( Eftir stutt stopp á Íslandi var flogið til Mílan og svo í lest til Florence. Maggi byrjaði á ráðstefnu strax daginn eftir að við komum til Florence svo ég bara dundaði mér að skoða Florence á meðan, við hittum líka vin okkar Bohua frá Ann Arbor sem var á bakpokaferðalagi um evrópu, þannig að við Bohua strunsuðum í gegnum fullt söfnum og kirkjum og sáum meðal annars styttuna David eftir Michalengelo, ekkert smá stór og glæsileg :D Florence er full af túristum, sem er reyndar ekkert skrýtið þar sem að hún er yfirfull af stórkostlegum söfnum, full af listaverkum og byggingum þekktum fyrir sérstæðum og fallegum arkitektúr. Eftir viku í Florence komu mamma, pabbi, Gunna, Raggi og strákarnir og Bibbi og Þórey með sín tvö að sækja okkur, og svo var tekið stefnuna í hús sem við leigðum í Toscana, rétt hjá bæ sem heitir Monte San Savino. Húsið var geggjað með sundlaug og risa garð og öllu tilheyrandi og þar vorum við í viku, algjör snilld. Toscana hérað er rosalega fallegt og fólkið þar mjög vinalegt, reyndar talar það sama sem enga ensku en þá er bara notast við handabendingar og svoleiðis :) Við höfðum það rosalega næs í húsinu í Toscana og fórum m.a. niður að vatni sem var svo stórt að það var bara eins og að vera á ströndinn án saltbragðsins ;) síðan var kíkt í bæina Arezzo og Siena og í vatnsrennibrautagarð og í kastala og síðan var slatta af tímanum eytt í afslöppun á sundlaugabakkanum. Reyndar eyddu karlmennirnir nokkrum tíma fyrir framan sjónvarpið að horfa á heimsmeistarmótið í fótbolta, sem var bara í góðu lagi. Síðan var algjört æði að fá að knúsa litlu englana frændsystkini mín og Kalli Sæmi varð eins árs á meðan við vorum í húsinu þannig að það var haldin afmælisveisla, rosa fjör :D Sem sagt, frábært frí, hefði reyndar verið gaman að stoppa aðeins lengur á klakanum en tíminn er fljótur að líða og við stefnum á að koma heim í jólafrí.
Ég setti inn fullt af myndum frá ferðinni í myndaalbúmið, og nokkrar hérna fyrir neðan, sumar reyndar svolítið úr fókus, minn ekki alveg bestur í að taka myndir :S






0 Comments:
Post a Comment
<< Home