Pressunni aflétt
Síðasta föstudag var ég í munnleg qualifying prófinu mínu, sem er hluti no. 2 af qualifying prófunum fyrir doktorsnámið. Ég stóðst prófið með ágætum :) þannig að nú er ég orðin doktors (phd) kandítat (á góðri íslensku ;) ) og er þá einu skrefi nær að klára doktorsnámið :D
Á laugardagskvöldið var síðan haldið upp á það í góðra manna hópi, vinir okkar úr skólanum og taekwondo klúbbnum mættu á svæðið og það var djammað fram eftir nóttu :) ...en auðvitað klikkaði ég á camerunni þannig að það fylgja engar myndir :S
Annars er ekkert rosa mikið að frétta, maður er bara búin að vera á haus að undirbúa sig fyrir þetta próf og reyndar kíkti maður aðeins á listahátíðina sem var hérna í 4 daga i síðustu viku fram á laugardag...ætlaði að kaupa einhvern fínan listmun í nýju íbúðina (sem við fáum á leigu i lok ágúst) en endaði bara á því að kaupa mér nokkrar flíkur ;)
Ekki meira í bili.....þangað til næst ..ta ta

0 Comments:
Post a Comment
<< Home